Jæja komið smá langt síðan ég bloggaði allavega kominn tími
til þess enda frekar margt búið að ské síðan síðast. Þetta blogg gæti orðið
langt en síðast þegar ég bloggaði var ég að fara heimsækja Þórhildi til Cagliari
sem er stærsta borgin á Sardiniu, við hittum ingibjörgu sem er skiptinemi með
Rotary. Fórum að versla og svo daginn eftir fórum við á ströndina og sáum
Flamingoa.
 |
| flamingoarnir i cagliari :) |
Fékk allavega 4 daga frí í nóvember og tók fyrsta ítölskuprófið mitt
, fékk 8,5. Er allavega byrjuð að læra í skólanum og gengur alltaf betur og
betur með ítölskuna. Byrjaði svo að æfa blak með Monicu systir sem þjálfar
hérna, fékk heilahristing á blakæfingu og allir héldu að ég hefði brotið kinnbeinið mitt því að ég var svo bólgin. Fer svo stundum með Monicu líka að þjálfa þroskaheftu krakkana, búin að
eignast marga vini þar(haha). 1.nóvember í skólanum var svo menningardagur í
skólanum mínum og þurftum að tala við krakkana og dönsuðum með mönnum frá
Senegal, gaman að því.
 |
Ég, Felix og Renato mexiconsku bekkjarbræður minir og mennirnir fra Senegal
|
Sara bosníska stelpan átti svo afmæli og við stelpurnar
bökuðum fyrir hana heima hjá Da. Síðasti skóladagurinn í Nuoro var svo
20.nóvember, var reyndar smá erfitt að kveðja krakkana.
 |
| Gamli bekkurinn:) |
 |
| Síðasti dagurinn í Nuoro, ég Sabri og Sara |
Er búin að finna besta
ítalska matinn minn sem heitir cuculi, "panzerotti" sem er réttur frá
puglia.
 |
| Cuculi |
 |
| Mamma hennar Cörlu að kenna mer að elda þetta. |
 |
| Það besta sem ég hef smakkað!! |
Svo byrjaði ég í nýjum skóla, sem er bara um 20 mín í burtu frá húsinu
mínu með strætó, sem þýðir að ég þarf ekki að vakna klukkan 6, heldur get sofið
til 7. Enn fékk sama stressið að byrja í skólanum og nýjum bekk enn þekkti
nokkrar stelpur úr blakinu sem fara í þennan skóla. Elsku besta stóra systir
mín keyrði litlu systur sína í skólann fyrsta skóladaginn og kom með mér að
tala við skólastjórann og nýji skólinn er rosalega lítill eða um 200 manns en
allir rosalega vinalegir og er í skrautlegasta bekknum, með 2 þroskaheftum
krökkum og allt miklu frjálslegara í þessum skóla, allir þekkja alla.. haha. Er
samt í stærri bekk heldur en í hinum skólanum. Búinn að eignast góða vini. Svo
er allt komið í frekar venjulega rútínu í skólanum ofl. Fór svo einn daginn á
leikrit hjá vinkonu minni en hún er í einkaskóla hjá nunnum, hélt reyndar að ég
væri að fara á ósköp venjulegt leikrit en byrjaði allt á voða hátíðlegri messu,
ég og Sara vissum ekkert hvað við áttum að gera , minnti mig frekar mikið á
messuna sem við fjölskyldan fórum á í Bandaríkjunum , en gaman að sjá þetta
samt. Svo var tekið viðtal við mig í blaðið. 1.Desember var svo"festa di
popoli, sem er hátið fyrir alla innflytjendur og allir áttu að
koma með mat,hluti ofl. Ég bakaði pönnukökur,sem slógu í gegn. En þá kom stelpa
sem heitir Genesis og er frá dómenýska lýðveldinu.
 |
| Fallegasta sem ég hef séð! |
Við þekktum hana smá og hún
var að koma til Nuoro útaf hún þurfti að skipta um fjölskyldu. Ég sagði svo
Cörlu og fjölskyldunni hennar frá því að hún vildi skipta um fjölskyldu, og
þeim langaði að taka hana. Svo fórum ég og Da á síðata ítölskutímann okkar og
þá komumst við að því að Genesis væri að flytja til Cörlu sem þýðir að við
verðum 3 í 100 manna þorpi. Ég , Felix frá mexico og Genesis frá Dómenýska
lýðveldinu og hún fer í skólann með mér og Da, þannig við erum líka 3 í litla
skólanum okkar. Ég mátti samt ekki vita þetta svo fékk ég sms um kvöldið þegar
ítölskunámskeiðið var og þau söðgu mér að koma og borða Kvöldmat með þeim og
þar var svo Genesis og ég held mér hafi tekist vel að vera hissa og ánægð,
haha. En Genesis var rosalega ánægð að ég hafi sagt nýju fjölskyldunni frá
henni.
 |
| Genesis :) |
Svo á mánudaginn 17. kom Genesis í skólann og í skólanum var
"autogestione" sem þýðir að krakkarnir skipuleggja skólann og þau
voru búinn að skipuleggja eitt herbergu með okkur skiptinemunum og allir spurðu
okkur spurninga, þvílik gleði sem það var, ég alltaf spurð um gæser eins og þau
segja ( geysir) og vulcano, ísbirnina okkar á Íslandi ofl. Þetta autogestione
var í 5 daga svo síðasta daginn var mótmæli hjá krökkunum og verkfall haha..
 |
| Verkfallið í skólanum |
19 desember var eitthver jólahátíð í grunnskóla þar sem við
allar þurftum að útskýra fyrir 6 ára gömlum krökkum jólin í heimalandinu okkar
og vorum búin að gera powerpoint. Ég talaði mest um íslensku jólasveinana 13
sem er skrifað á ítölsku babbo natale en ég skrifaði babo natale og kom svona
að minnsta kosti 10 sinnum fyrir og var eina villan í kynninguni minni enn krakkkarnir
hlógu alltaf jafnt mikið í hvert einasta sinn sem það kom fyrir.
 |
| International- Jóladagurinn í grunnskólanum. |
Svo 20. Desember þurfti bekkurinn minn að
fara að þrífa rykið í nýju byggingunni okkar í skólanum. Svo kom Marta 21.Des,
svo við Kiki fórum að versla jólagjafir í Olbia og ég fór ekki í skólann 21.
des og bakaði lakkrístoppa, var loksins kominn í langþrátt 2.vikna jólafrí.
Fékk samt sem áður fyrsta heimanámið mitt sem var hvorki meira né minna en 80
blaðsíður í sögu. En bekkjarsystkini mín fengu mun meira heimanám. Ég náði að
klára að lesa um 10 bls í sögunni. Á þorláksmessuni voru svo gestir í heimsókn.
Svo 24 var um 20 stiga hiti og við fórum á ströndina og niðrá höfn, þar voru
marglyttur í sjónum sem þýðir að það er heitur sjórinn. Fór svo til Monicu um kvöldið að hringja heim og var rosalega gaman að
hitta ömmurnar á skype og þessi litla heimþrá sem ég fékk yfir jólin hvarf
alveg þegar ég fékk yndislegu og bestu
jólagjöfina í gegnum skype!!!
 |
| Jólatréð |
Svo var jóladagurinn sem er hátíðardagurinn hér
og við vöknuðum snemma og opnuðum jólapakkana og svo komu gestir og maður opnar
pakkana fyrir framan gestina, Svo fórum við í mat til Monicu og vorum um 20
manns, og jólamaturinn minn var rækjur í kokteilsósu, kolkrabbi og
hörpuskeljar!! Smakkaði allt en kolkrabban náði ég varla að tyggja svo ég
borðaði bara vel af eftirréttunum, Tiramisu !! Maturinn var í um 7 tíma
byrjuðum að borða um 12:00 leytið og kláruðum um 20:00. Smakkaði líka 35 ára
gamalt rauðvín sem pabbi hans Mario bjó
til þegar hann var ungur. Svo fór ég heim og hafði mig til og fór svo á ball
með stelpunum.
 |
| Kolkrabbin |
 |
| Ég og systur mínar <3 |
 |
| Ég og Genesis |
Svo 26. Desember fór
Marta aftur heim til sín og Monica í brúðkaupsferðina til dómenýska
lýðveldisins. Svo við vorum bara 3 eftir heima, gerði reyndar rosa lítið í
þessu jólafríi nema sofa og eitthver leti.
Áramótin voru rosa fí fór snemma heim til Cörlu og Genesis og Carla málaði mig svo fór ég í íbúð
sem við vinkonurnar vorum með í láni, við elduðum og borðuðum , svo fórum við á
hátíð hérna í Cala gonone og svo aftur á ball.
 |
| Áramótin Lorenza, ég og Marta |
 |
| Stelpurnar komu og heimsóttu okkur í gonone. |
Á nýjarsdag borðuðum við heima
hjá systir Kikiar og á þrettándanum borðuðum ég og Da með fjölskylædunni minni
og vinafólki þeirra í kjallarabílskúr og fórum svo á tónleika. Svo er skólinn
byrjaður núna og styttist í að ég taki mér 21 dags frí í Febrúar til að fara
til Madrid með skólanum með 5. bekknum , en ég , Genesis og da fáum að fara með
, svo þegar við komum heim þá förum við beint af flugvellinum eftir 7 daga á
spáni, beint á afs camp í 5 daga og svo kem ég heim 13. Febrúar af campinu
eftir 2 vikna ferðalag og fer svo beint 16.Feb til Milano að heimsækja Mörtu
systur mína og við förum að versla og á sigurrós tónleika.
 |
| MILANO!! |
 |
| MADRID |
Ég blogga svo aftur þegar ég er búin í þessu ferðalagi mínu, vona að þið hafið nennt að lesa þetta :)
No comments:
Post a Comment