Thursday, November 1, 2012

Smá svona


Jæja síðasta blogg var frekar langt og núna ætla ég að hafa þetta aðeins styttra!

Biðst aftur velviðringar á því að það eru engar myndir, það er bara vegna þess að ég er að nota 3g net og miklu auðveldara að skoða a facebook!

Við fórum á campið sem allir voru orðnir svo spenntir fyrir , við erum 5 stelpur herna á Nuoro svæðinu (Sabrina frá Ameriku , Tanida frá Tailandi , Romina frá Chile , Sara frá Bosniu) Við erum allar orðnar rosa góðar vinkonur og hittumst oft , reynum að tala ítölsku enn stundum fer maður óvart yfir á enskuna! Fimtudaginn 11. Nov þa hittumst við allar í Mollinu herna og biðum eftir að krakkarnir kæmu í rútunni sem voru í bænum á undan! Ég var orðin rosa spennt að hitta Þórhildi og Soffíu og svo sé ég þær ekkert koma út úr rútunni og fer aftur inní mallið því við ætluðum öll að borða saman. Svo labba ég inní mallið standa íslensku stelpurnar þar ! og það var ekkert smá skrýtið að tala Íslenskuna þótt það sé bara mánuður síðan og manni leið eins og maður væri að tala hana vitlaust! Og við töluðum allar alveg svaka hægt haha frekar spes.  Við borðuðum svo hádegismat þarna og lögðum svo a stað! Svo komum við á staðinn og þetta var rosa flott hótel með sundlaug! Kiki sagði við mig að þessi staður væri mun kaldari en Cala gonone og hún sagði mér að taka þykk föt og úlpu. Sem ég jú auðvitað gerði og sá strax eftir því á fyrstu mínutu! Við þurftum að labba alveg lengst upp og ég í svitabaði og það fyrsta sem ég gerði var að skipta um föt ! Eg lenti i herbergi með Þorhildi og við vorum fljótar að dipsa stærsta rúmið haha !Það sem við gerðum á campinu var að deila reynlsusögum og ef það voru eitthver vandamal þa var reynt að finna út úr þeim , það voru rosa margir sem höfðu vandamal en við allar stelpurnar sem búum á Nuoro svæðinu virðist sem við seum allar rosa heppnar! Það voru líka allir rosa hissa hvað við vorum orðnar góðar vinkonur , Þetta camp var allavega rosa gaman og gaman að heyra hvað aðrir krakkar halda um Ísland , þeim finnst rosa merkilegt að allir heita dóttir og son haha og við þurftum mikið að útskýra það , svo afþví við vorum 3 íslenskar þá fannst þeim öllum svo gaman að hlusta á okkur. Við fórum svo öll á ströndina og í sund því það var svo gott veður allan tímann fyrir utan smá hitaskúrir! Á campinu var svo hæfileikakeppni og við íslensku stelpurnar ætluðum að syngja en sluppum við það ! En rosa flott að sjá suðuramerisku krakkana dansa típiska dansa!  Vildi óska þess að við hefðum þessa dansmenningu hér ! Svo var campið þar til á föstudag og það var rosa afslappandi! haha að geta talað íslensku og bara ensku ! Var pinku erfitt að kveðja alla en gaman að kynnast öllum betur og við ætlum að plana að hittast oftar og svona. Svo var bara venjulegur mánudagur í skólanum og allir rosa glaðir að hitta mig aftur haha! og stelpurnar voru alltaf að senda mér miða! Maður er búin að hitta svo marga hérna að ég man ekki helminginn af nöfnunum og oft sem eitthver heilsar sem maður man ekkert eftir , en hér heilsast fólk líka ef það þekkir mann ekki , sérstaklega strákar þeir hika ekki við að segja Ciao! Þegar maður labbar einn þá er starað á mann! Get ekki ýmindað mér hvernig þetta er fyrir ykkur ljóshærðu vinkonu mínar á Ítalíu!
Svo á þriðjudaginn þá fór ég í skólann og svo heim til Sabrinu sem býr í Mamoiada! Við ákvaðum svo að fara í göngutúr og setjast á barinn eins og allir gera hér ! Þá byrjaði þessi úrhellisrigning , svo við sátum aðeins á barnum og ákvaðum svo að fara aftur til Sabrinu , þegar við komum svo þangað þá fann Sabrina ekki lykilinn og ég var bara á stuttermabolnum ! Við ákvaðum þá bara að bíða eftir stræto og taka stræto í Nuoro! Fórum reyndar inn til vinkonu hennar renniblautar og biðum þar , Svo komum við til Nuoro og fórum aftur á bar haha og svo að skoða í búðir . Svo fór ég heim og var ekki fyrr komin heim fyrr en ég var farin að hnerra. Svo vaknaði ég daginn eftir með þessa þvílíku hálsbólgu og kvef , (íslenska þjóðarstoltið alveg farið) Ég lét það nú ekki á mig fá og viðurkenni ekki að ég hafi verið orðin veik í um 20 stiga hita ! Fór í skólann og var alveg að drepast haha! Eitt sem ég tók strax eftir á fyrsta degi er að allir  snýta sér alveg óspart í tíma! Ég hef ekki ennþá haft það í mér ! Svo fór ég heim og var ennþá að reyna vera sami víkingurinn og fór í Nordic walking með Monicu og Kiki! Kom svo heim og var alveg dauð á því ! Ákvað að fara ekki í skólann á fimmtudaginn ! Enda orðin hálfraddlaus! Svo að ég var bara heima ! Daginn eftir fór ég svo í skólann og ég átti að fara í annan skóla sem Sabrina er í með öllum hinum stelpunum nema hvað að kennarinn vildi ekki hleypa mér út því að það er alveg svaka strangur skólinn hérna ! Ég fór svo eftir tímann og hljóp í skólann hennar Sabrinu og þar vorum við að kynna AFS alveg rosa margir krakkar spenntir að tala við mann hahah! Eftir það bauð svo Anna Lisa sem er forseti Afs í Nuoro hún bauð okkur heim til sín í mat og fékk uppahaldið:Lasagna! 
Á föstudaginn fór ég svo í plokkun með Sabrinu! borguðum 5 evrur fyrir það!! Á íslandi borgar maður um 33 evrur! Svo bara ítölskutími! Á Laugardaginn kom svo Da að gista og ég var búin að spurja Kiki og hun sagði auðvitað já! og hún bauð henni að borða pizzu, svo komst ég að því á föstudagskvöldið að það var heil herslóð á leið í mat til okkar! Da og öll fjölskyldan hennar, Carla og öll fjölskyldan hennar og vinkona ! Þetta var rosa gaman og við elduðum saman pizzu.. What a surprise ! Svo á sunnudaginn var endalausir gestir eins og alltaf ! Við fórum svo á ströndina í smá og skoðuðum eitthvað :).
Langaði líka að koma því inn að í þessari venjulegu viku borðaði ég fisk í fyrsta eða annað skipti og það var þetta ljúffenga laxasalat og svo heill fiskur með roði , haus , augum , beini og öllu tilheyrandi, fyrir hvern og einn ! Kunni ekki alveg á það en það reddaðist. Jæja ég er svo aðeins farin að geta lært hérna , en er ekki ennþá komin með neina bók fyrir utan enskubókina, búin að fara í fyrsta enskuprófið og er byrjuð í ensku með 5.bekk! Gaman að segja frá því að ég var valin ásamt 30 öðrum krökkum að representa land fyrir sameinuðu þjóðirnar! Þetta er valið útaf enskukunnáttu !! Ekki er ég ein af þeim bestu í ensku á Íslandi.. Gaman að því.. Svo fór ég til Sassari að versla með Monicu, Giorgio, Mario og Kiki. Við byrjuðum á því að fara í risa íþróttabúð , var smá misst sig þar ég keypti 3 reiðbuxur , vetrarúlpu, 2 peysur, boli, buxur og svo gaf monica mer skó , hún keypti líka fyrir mig málningardót ekkert smá sætt! Ég er byrjuð að fá aðeins að heimanámi enn allt voða auðvelt eins og að gera powerpoint show um sögu íslands , Skrifa um listsögu Íslands og gera myndashow með myndum af sjálfri mér og vinum haha ! Núna er ég komin í frí vegna þess að í dag er the day of saints og á morgun dagur til minninga um dána. Í gær fór ég á Halloween ball með Da og stelpunum! Í fyrramálið kl 4:50 fer ég í strætó til Cagliari að heimsækja Þórhildi og gisti eina nótt !! Jeijjjjjj!! :D Er annars í fríi í 4 daga í skólanum ! Hér er orðið frekar kalt og ég er byrjuð að nota sæng til að sofa með! Aðeins byrjað að nota peysurnar líka haaha

Skólinn hérna er það strangasta ! það er aldrei hleypt út 1 mínútu fyrr!
 Ef að tími fellur niður þá máttu ekki fara útaf skólalóðinni! Eins og um daginn var 2 tíma gat og við þurftum að sitja fyrir utan ! Hvílik gleði sem það var!

1 comment:

  1. Frábær penni ertu Karitas alltaf gaman að lesa bloggið þitt já held þú sért rosa heppinn með stað og fjölskyldu Gangi þér vel elskan <3

    ReplyDelete