Sunday, January 13, 2013

Nýr skóli, Jól, áramót og spennandi tímar framundan


Jæja komið smá langt síðan ég bloggaði allavega kominn tími til þess enda frekar margt búið að ské síðan síðast. Þetta blogg gæti orðið langt en síðast þegar ég bloggaði var ég að fara heimsækja Þórhildi til Cagliari sem er stærsta borgin á Sardiniu, við hittum ingibjörgu sem er skiptinemi með Rotary. Fórum að versla og svo daginn eftir fórum við á ströndina og sáum Flamingoa.


flamingoarnir i cagliari :)



 Fékk allavega 4 daga frí í nóvember og tók fyrsta ítölskuprófið mitt , fékk 8,5. Er allavega byrjuð að læra í skólanum og gengur alltaf betur og betur með ítölskuna. Byrjaði svo að æfa blak með Monicu systir sem þjálfar hérna, fékk heilahristing á blakæfingu og allir héldu að ég hefði brotið kinnbeinið mitt því að ég var svo bólgin. Fer svo stundum með Monicu líka að þjálfa þroskaheftu krakkana, búin að eignast marga vini þar(haha). 1.nóvember í skólanum var svo menningardagur í skólanum mínum og þurftum að tala við krakkana og dönsuðum með mönnum frá Senegal, gaman að því. 



Ég, Felix og Renato mexiconsku bekkjarbræður minir og mennirnir fra Senegal
Sara bosníska stelpan átti svo afmæli og við stelpurnar bökuðum fyrir hana heima hjá Da. Síðasti skóladagurinn í Nuoro var svo 20.nóvember, var reyndar smá erfitt að kveðja krakkana.
Gamli bekkurinn:)


Síðasti dagurinn í Nuoro, ég Sabri og Sara




Er búin að finna besta ítalska matinn minn sem heitir cuculi, "panzerotti" sem er réttur frá puglia. 
Cuculi
Mamma hennar Cörlu að kenna mer að elda þetta.


Það besta sem ég hef smakkað!!


Svo byrjaði ég í nýjum skóla, sem er bara um 20 mín í burtu frá húsinu mínu með strætó, sem þýðir að ég þarf ekki að vakna klukkan 6, heldur get sofið til 7. Enn fékk sama stressið að byrja í skólanum og nýjum bekk enn þekkti nokkrar stelpur úr blakinu sem fara í þennan skóla. Elsku besta stóra systir mín keyrði litlu systur sína í skólann fyrsta skóladaginn og kom með mér að tala við skólastjórann og nýji skólinn er rosalega lítill eða um 200 manns en allir rosalega vinalegir og er í skrautlegasta bekknum, með 2 þroskaheftum krökkum og allt miklu frjálslegara í þessum skóla, allir þekkja alla.. haha. Er samt í stærri bekk heldur en í hinum skólanum. Búinn að eignast góða vini. Svo er allt komið í frekar venjulega rútínu í skólanum ofl. Fór svo einn daginn á leikrit hjá vinkonu minni en hún er í einkaskóla hjá nunnum, hélt reyndar að ég væri að fara á ósköp venjulegt leikrit en byrjaði allt á voða hátíðlegri messu, ég og Sara vissum ekkert hvað við áttum að gera , minnti mig frekar mikið á messuna sem við fjölskyldan fórum á í Bandaríkjunum , en gaman að sjá þetta samt. Svo var tekið viðtal við mig í blaðið. 1.Desember var svo"festa di popoli, sem er hátið fyrir alla innflytjendur og  allir áttu að koma með mat,hluti ofl. Ég bakaði pönnukökur,sem slógu í gegn. En þá kom stelpa sem heitir Genesis og er frá dómenýska lýðveldinu. 
Fallegasta sem ég hef séð!


Við þekktum hana smá og hún var að koma til Nuoro útaf hún þurfti að skipta um fjölskyldu. Ég sagði svo Cörlu og fjölskyldunni hennar frá því að hún vildi skipta um fjölskyldu, og þeim langaði að taka hana. Svo fórum ég og Da á síðata ítölskutímann okkar og þá komumst við að því að Genesis væri að flytja til Cörlu sem þýðir að við verðum 3 í 100 manna þorpi. Ég , Felix frá mexico og Genesis frá Dómenýska lýðveldinu og hún fer í skólann með mér og Da, þannig við erum líka 3 í litla skólanum okkar. Ég mátti samt ekki vita þetta svo fékk ég sms um kvöldið þegar ítölskunámskeiðið var og þau söðgu mér að koma og borða Kvöldmat með þeim og þar var svo Genesis og ég held mér hafi tekist vel að vera hissa og ánægð, haha. En Genesis var rosalega ánægð að ég hafi sagt nýju fjölskyldunni frá henni.
Genesis :)



Svo á mánudaginn 17. kom Genesis í skólann og í skólanum var "autogestione" sem þýðir að krakkarnir skipuleggja skólann og þau voru búinn að skipuleggja eitt herbergu með okkur skiptinemunum og allir spurðu okkur spurninga, þvílik gleði sem það var, ég alltaf spurð um gæser eins og þau segja ( geysir) og vulcano, ísbirnina okkar á Íslandi ofl. Þetta autogestione var í 5 daga svo síðasta daginn var mótmæli hjá krökkunum og verkfall haha.. 



Verkfallið í skólanum



19 desember var eitthver jólahátíð í grunnskóla þar sem við allar þurftum að útskýra fyrir 6 ára gömlum krökkum jólin í heimalandinu okkar og vorum búin að gera powerpoint. Ég talaði mest um íslensku jólasveinana 13 sem er skrifað á ítölsku babbo natale en ég skrifaði babo natale og kom svona að minnsta kosti 10 sinnum fyrir og var eina villan í kynninguni minni enn krakkkarnir hlógu alltaf jafnt mikið í hvert einasta sinn sem það kom fyrir.  

International- Jóladagurinn í grunnskólanum.


Svo 20. Desember þurfti bekkurinn minn að fara að þrífa rykið í nýju byggingunni okkar í skólanum. Svo kom Marta 21.Des, svo við Kiki fórum að versla jólagjafir í Olbia og ég fór ekki í skólann 21. des og bakaði lakkrístoppa, var loksins kominn í langþrátt 2.vikna jólafrí. Fékk samt sem áður fyrsta heimanámið mitt sem var hvorki meira né minna en 80 blaðsíður í sögu. En bekkjarsystkini mín fengu mun meira heimanám. Ég náði að klára að lesa um 10 bls í sögunni. Á þorláksmessuni voru svo gestir í heimsókn. Svo 24 var um 20 stiga hiti og við fórum á ströndina og niðrá höfn, þar voru marglyttur í sjónum sem þýðir að það er heitur sjórinn.  Fór svo til Monicu um kvöldið  að hringja heim og var rosalega gaman að hitta ömmurnar á skype og þessi litla heimþrá sem ég fékk yfir jólin hvarf alveg þegar ég fékk yndislegu  og bestu jólagjöfina í gegnum skype!!!

Jólatréð

 Svo var jóladagurinn sem er hátíðardagurinn hér og við vöknuðum snemma og opnuðum jólapakkana og svo komu gestir og maður opnar pakkana fyrir framan gestina, Svo fórum við í mat til Monicu og vorum um 20 manns, og jólamaturinn minn var rækjur í kokteilsósu, kolkrabbi og hörpuskeljar!! Smakkaði allt en kolkrabban náði ég varla að tyggja svo ég borðaði bara vel af eftirréttunum, Tiramisu !! Maturinn var í um 7 tíma byrjuðum að borða um 12:00 leytið og kláruðum um 20:00. Smakkaði líka 35 ára gamalt  rauðvín sem pabbi hans Mario bjó til þegar hann var ungur. Svo fór ég heim og hafði mig til og fór svo á ball með stelpunum.  

Kolkrabbin


Ég og systur mínar <3

Ég og Genesis


Svo 26. Desember fór Marta aftur heim til sín og Monica í brúðkaupsferðina til dómenýska lýðveldisins. Svo við vorum bara 3 eftir heima, gerði reyndar rosa lítið í þessu jólafríi nema sofa og eitthver leti.  Áramótin voru rosa fí fór snemma heim til Cörlu og  Genesis og Carla málaði mig svo fór ég í íbúð sem við vinkonurnar vorum með í láni, við elduðum og borðuðum , svo fórum við á hátíð hérna í Cala gonone og svo aftur á ball. 

Áramótin Lorenza, ég og Marta


Stelpurnar komu og heimsóttu okkur í gonone.

Á nýjarsdag borðuðum við heima hjá systir Kikiar og á þrettándanum borðuðum ég og Da með fjölskylædunni minni og vinafólki þeirra í kjallarabílskúr og fórum svo á tónleika. Svo er skólinn byrjaður núna og styttist í að ég taki mér 21 dags frí í Febrúar til að fara til Madrid með skólanum með 5. bekknum , en ég , Genesis og da fáum að fara með , svo þegar við komum heim þá förum við beint af flugvellinum eftir 7 daga á spáni, beint á afs camp í 5 daga og svo kem ég heim 13. Febrúar af campinu eftir 2 vikna ferðalag og fer svo beint 16.Feb til Milano að heimsækja Mörtu systur mína og við förum að versla og á sigurrós tónleika. 


MILANO!!


MADRID

Ég blogga svo aftur þegar ég er búin í þessu ferðalagi mínu, vona að þið hafið nennt að lesa þetta :)