Wednesday, October 10, 2012

Blogg númer 2


Jæja ,  ég er ennþá á lífi eftir einn mánuð í Ítalíu, get ekki sagt annað en að þetta er besti tími lífs míns , það er margt búið að ské síðustu daga , fyrstu skóladagarnir og brúðkaup!! Langar að segja ykkur aðeins frá þessu enn þó ekkert nákvæmlega.   


Fyrsti skóladagurinn var 17.september , ég vaknaði klukkan 6 og gerði mig alveg tilbúna , svo fór ég með Mörtu systir minni og Kiki mömmu til Nuoro , það er borgin sem að skólinn minn er í Hún er í um 40-50 mínutna fjarlægð (Þegar kiki keyrir) Enn um það bil klukkutíma og 20 mín með rútuni. Við þurftum að bíða alveg heillengi því að það var eins og enginn vissi hvert ég átti að fara en svo sögðum við að mér langaði að vera í bekk með Eleonoru og ég fékk það. Ég labba inn og segi Buongiorno við kennarann og í því fara allir að hlægja , ég skil ekkert og held að eg se að gera eitthvað vitlaust svo sagði Eleonora mér að þau hefðu verið að hlægja afþví það forðast allir þennan kennara. Fyrsti tíminn var vísindi og það gekk svona hrikalega vel sat í tvo tíma að hlusta á vísindanöfn á Grísku.. Svo í 10 mínutna hléinu okkar hópast allar stelpurnar áað mér og spurðu endalausar spurningar , önnur hver manneskja spyr hvort ég viti hvað Of monsters and men sé. Fyrsti skóladagurinn var bara stuttur til 11 og þá fórum við að versla fyrir brúðkaupið. Síðan var bara haldið heim , og það voru endalausir gestir útaf brúðkaupinu.  Næsta skóladag vakna ég klukkan 5:30 til að taka rútuna. Það er ekki frásögufærandi en skólinn minn er eini skólinn sem byrjar klukkan 8:30 en ekki 8 þannig ég þarf að bíða fyrir utan í halftíma.. Eftir þennan skóladag fór ég í Mallið með Cörlu að finna kjól á mig fyrir brúðkaupið.  Næsta skóladag þurfti ég svo að skipta um bekk , því að enskukennarinn sem er aðstoðarmaðurinn minn var kominn í skólann, hún bauð mér á kaffihús og  hún vildi endilega fá mig í bekk sem bara stelpur eru í og svo byrjaði strákur sem er he´rna með Rotary og er frá Mexico.  Ég skipti samt mjög líklega um bekk aftur og verð með Eleonoru í bekk. Ég er allavega í tungumála bekk , em þýðir að ég þarf að sitja í spænsku, frönsku, grísku og latínu tímum.  Ætli það sé ekki betra að læra Ítölskuna fyrst.. Þessi vika var voða mikið bara skóli , undirbúningur og fullt af gestum. Í skólanum mínum eru engir speglar og engar klukkur , þú tekur þinn eigin klósettpappír með þér ef þú ætlar að gera þarfir þínar, Skólastofan er ekki uppá marga fiska , það er eitt kennaraborð með kladda á , pláss fyrir akkurat borðin sem eru ekkert smá lítil og stólar sem eru ekki uppá marga fiska , og já það er svo krítartafla eða sumsstaðar tússpennatafla (hvílik tækni) Já og hver hæð hefur eina fartölvu og skjávarpa.. En ekki ein smartboardtafla og tölva í hverri stofu.. Ég held það sé komið nóg af babbli um skólann svo að brúðkaupið er næst bara..Eitt sem mér langar að segja áður er að það voru um 1000 gestir yfir alla dagana en um 600 í brúðkaupsveislunni sjálfri.



Á föstudeginum var fínn hádegismatur og með honum var brúðkaupið sett. Svo fór ég og Marta í íbúðina þeirra Monicu og Giorgio , þar voru allir vinir þeirra tilbúnir að gera allt í drasli og við vorum örugglega með svona 2 kg af því sem kemur þegar maður gatar blöð, 200 blöðrur og 5 pakka af hrísgrjónum , þessu dreifðum við um alla íbúðina og það var engin miskun sýnd heldur troðið þessu inní bækur og á bakvið málverk svo að eftir nokkur ár þegar þau ætla lesa bókina þá hrinur þetta úr.. svo í lokinn tókum við bandsspottan og settum hann þvers og kruss í íbúðina.  

Eftir þetta allt saman fórum við svo heim og við vorum allar útí pappír og Monica frekar skelkuð. Svo for ég í sturtu og heyrði þá þessi svaka læti fyrir utan þá voru þetta Giorgio og vinir þeirra komin til að syngja fyrir Monicu , það er hefð hérna kvöldinu áður.  Svo voru þessir gestir til um 1, þá fórum við öll að sofa og Monica og Marta sváfu saman í rúminu hjá Mörtu, sem er ekkert rosa stórt , og ég spurði hvort að ég ætti ekki að sofa í sófanum þá var það alveg útí hött því þær sofa saman í rúminu þegar það er sorgartími og gleðitími..



Ég vaknaði um 6 , alveg að drepast úr þreytu en þá var heilt herlið af vinnukonum komnar til að greiða okkur öllum og farða.  Mér langaði reyndar ekki í greiðslu svo ég sléttaði á mér hárið og fór svo í förðun. Svo var fjölskyldumyndataka niðri og þau vildu endilega hafa mig með , þótti smá vænt um það! Svo var Giorgio og hans fólk að koma hérna heim en þá voru bara þeir nánustu (150 manns). Úti á stétt var svo pinnamatur og vín og þegar allir voru búnir að borða þá var haldið í kirkjuna , og já allstaðar sem Monica labbar er brotið disk sem hefur nammi og peninga , þa eiga börnin að reyna na eitthverju. Athöfnin í kirkjuni var rosalega falleg og falleg kaþólsk kirkja , en ég mátti ekki sýna á mér axlirnar svo að ég þurfti að vera með sjal yfir mér. En það var örugglega um 30 stiga hiti og ég hélt ég myndi ekki komast lifandi útur kirkjunni.  Svo eftir athöfnina  þá fóru allir í bílana og keyrðum hring um Cala gonone og allir flautuðu. Maturinn var svo haldin á ekkert smá flottu hótelþorpi , og áður en brúðhjónin koma þangað þá er alltaf skotið úr byssu. Ég fór með Salvadore frænda og þegar við komum var aftur pinnamatur og cocteilar og vín ofl Ég sat svo bara með stelpunum í matnum og það var 16 rétta matseðill og maturinn var í svona 5 tíma.. Enn allavega þá var þetta líka anniversary hjá foreldrum Giorgio og Kiki og Mario , og það er hefð hérna að vinirnir gefa alltaf gjöf, og svo kom vinur þeirra til min og spurði mig hvort eg vildi taka þátt í smá djóki.. Ég sagði auðvitað bara já og svo sagði hann mér frá þessari hefð og að þau hefðu eiginlega ekkert búin að skipuleggja neitt svo þau vildu að ég væri gjöfin.. og þau settu borða í harið á mér og svo héldu kallarnir á mér og sungu meðan þeir löbbuðu með mig til þeirra og sögðu þeim að þetta væri gjöfin frá þeim, hahah. Þegar við vorum svo búið að borða þessa 16 rétti þá var dansað , og mikið af Sardo dansi , sem ég kann ekki ( en stefni af því að læra) svo ég sat bara með vinum hennar Mörtu sem búa í Milano.. Haha. Svo eftir það var aftur borðað og Brúðhjónin fóru í myndatöku. Svo komu stelpurnar sem Monica þjalfar í blaki og spurðu mig hvort að ég væri ekki nýja systir hennar þá svaraði ég jú og þær vildu endilega fá mig í að prófa blak og koma á æfingu svo ég stefni af því að prófa en það hittir alltaf á ítölskutímana , en þeim fækkar eftir október, svo að ég get vonandi byrjað . Ég spilaði blak með þeim og svo í síðasta kastinu þá auðvitað..snillingurinn ég skaut boltanum ofaní sundlaugina svo við biðum heillengi eftir að ná boltanum.. Haha og ég með samviskubit.. Enn Síðan eftir þetta allt saman þá var disco og ég fór með blakstelpunum og við dönsuðum , svo var aftur matur í discoinu! Jæja ég fór svo bara snemma heim því að allir á mínum aldri voru farnir. Svo var mér farið að hlakka svo til að sofa út, var vakin um 8 afþví það voru aftur gestir að koma , hvílik gleði sem það var. Þá voru ss um 50 manns í hádegismat og afgangarnir eftir þessa 50 manna matarveislu verða örugglega borðaðir alla daga fram að jólum.. Ég held að við höfum verið í 4 daga að klára kökuna !  Svo voru endalausir gestir í svona 3 daga eftirá brúðkaupið.  Vikan á eftir var svo bara skóli og fór aðeins á ströndina með Mörtu og Paolu sem er systir Kikiar. Svo byrjaði Ítölskunámskeiðið og ég byrjaði í Nordic walking sem að Monica þjálfar hérna , og það er rosa gaman , og ég byrja svo í blaki sem að Monica þjálfar líka þegar að Ítölskutímunum fækkar.  Þessi vika var frekar róleg , svo var önnur skólavika og ég var veik á mánudeginum , og ég skrifaði bréf til kikiar um að eg yrði veik heima í dag , afþví að hún vaknar alltaf a´eftir mér , svo vakna ég við að hún kemur ekkert smá áhyggjufull uppí herbergi til mín .. Svo á miðvikudeginum var aftur Ítölskunámskeið og afþví að ég bý svo langt í burtu þá kom Adriana sem er sjálfboðarliði hjá AFS hún kom og sótti mig og ég borðaði hjá henni. Á laugardaginn fór ég svo í bíó með bekknum mínum og þar voru bekkir úr flestum skólunum í Nuoro. Þetta var ss mynd sem var tekin upp á Sardiniu og var um unglingsstrák frá Sardiniu og lenti í fangelsi. Anyways þá var maðurinn sem gerði myndina hann var að tala áður og hann þakkaði skiptinemanum í salnum fyrir að koma og horfa og eitthvað . Svo sagði hann að það væri ein persóna í myndinni sem ætti að vera Íslensk persóna , áttaði mig ekki á því hvaða persóna það var ..haha. Svo 3 dögum eftir kom þetta í fréttunum og nærmynd af mér allan tíman.. Hvílik gleði sem það var!! Svo kom ég heim og Mario alveg svaka glaður að hafa séð mig í fréttunum.. Svo um kvöldið þá fór ég í afmæli hjá Luciu , og þar hitti ég krakka sem eru með Da í skóla og búa í Dorgali og kynntist eitthverjum þar.Svo núna á laugardaginn þá fór ég heim til Eleonoru og ég borðaði með þeim hádegismat, og þar fékk ég eitt enn hrósið fyrir augun í mér og þau hljómuðu þannig að ég væri með augu eins og köttur , ég vissi ekki alveg hvort það væri slæmt eða gott, en ég sagði allavega grazie. Svo komu krakkar sem voru í fyrra skiptinemar um allan heim og eru frá Nuoro og svo skiptinemarnir sem eru núna í Nuoro , heim til Eleonoru og við pöntuðum pizzu og borðuðum sardiniu kökur nommmm.. Svo dönsuðum við í bílskúrnum hennar og gistum svo eftir allt saman ! þetta var rosa gaman og gaman að kynnast þessum krökkum!!  Svo á sunnudaginn fór ég og Da með Eleonoru og fjölskylduni hennar í sumarhúsið sem þau eiga og við borðuðum þar og það var frekar fyndið við matarborðið þá var könguló sem mér fannst nú alveg nógu stór fyrir hliðiná mér og ég hætti ekki að horfa á hana og mamam hennar tók eftir því og spurði mig hvort eg væri hrædd og eg sagði pínu og svo sagði hún engar ahyggjur þessi er bara lítil og vso í eitt skiptið þegar ég lít þá kemur þessi risa stóra konguló sem var örugglega jafnt stór og lófinn á mér, þá segi rmamma hennar við drepum hana bara.. En við máttum það ekki afþví að Da er búddisti og svipurinn á henni þegar mamma hennar sagði þetta var ekki fagur.. Við fórum svo að skoða Bed& Breakfastid sem systir mömmu Eleonoru var að byrja með sem var ekkert smá flott , svo kom mamme hennar cörlu ad sækja okkur og við fórum að sækja cörlu á flugvellinum í Olbia , hún var að koma frá Milano þar sem hún tók próf til að komast inní háskóla í Englandi við fórum svo í Mallið í Olbiu ,það fyrsta sem ég sá utaná var Mcdonalds og þau voru alveg hissa hvað ég var spennt yfir því , en mér leið svona líka hræðilega í maganum eftirá, anyways , við versluðum eitthvað pínu og pínu fyndið að ég var að skoða sumarfötin og Da var að reyna finna sem þykkustu peysuna !! Eftir þetta fór ég heim til Cörlu því eg þurfti að gera power point show um Íslenska fánnan og hún hjálpaði mér að þýða yfir á Ítölsku. Ég gisti svo hjá Cörlu! Svo á mánudaginn og kennarinn var svona líka ánægður með mig..  Í gær fór ég svo í skólann og þá byrjaði annar mexikanskur strákur í bekknum mínum , svo núna erum við um 13 stelpur og 2 mexikanskir strákar. Þessi talar rosa góða ensku því hann býr við landamærin á Lasvegags og fæddist þar!  Svo núna á fimmtudaginn þá er AFS campið og ég hreinlega get ekki beðið eftir að hitta Íslenskustelpurnar !! jeijjjj og fá að vera á 5 stjörnu hótelinu !! Það verður nú eitthvað 

Langaði aðeins að tala um tískuna hérna þar sem það virkar ekki að setja inn myndir þa linka eg bara
3279-897314-p.jpg  þessir hrillilegu skór eru í aðaltískuni hérna.. 

og þessir images því stærri loftpúðar því flottari ertu!!


   

Það virkar því miður ekki að setja inn myndir en ég er búin að posta myndum á facebook og vonandi er það nóg! Ég náði loksins að tengja netið í símanum við tölvuna en svo vonandi eftir mánuð þá verða þau loksins komin með router , þar sem að tölvan mín er of ný fyrir 3g lykilinn! ákvað þessvegna að posta blogginu , vona að það hafi ekki verið rosa leiðinlegt !! Lofa myndabloggi bráðum