Sunday, September 16, 2012

Fyrsta bloggið


Chiao !!

Þá  er þessu langa ferðalagi loksins lokið ! og ég er kominn til fjölskyldunar minnar , mér langar að segja ykkur frá ferðalaginu frá Íslandi.  Þið getið svo séð allar myndirnar mínar á facebookinu mínu. Vona að þið nennið að lesa þetta því þetta er rosa langt

 Ferðalagið Þetta byrjaði allt á því að ég vaknaði klukkan 3 gat semsagt ekki sofið lengur eftir 2 tíma svefn , Við 12 íslensku skiptinemarhir hittumst svo á flugvellinum við tjékkuðum okkur inn og sumir voru með meiri yfirvigt en aðrir en held að flestir hafi sluppið ! höfðum frekar lítinn tíma í fríhöfninni svo að við keyptum íslenskt nammi fyrir fjölskylduna sem reyndar flestir voru svo búnir að éta þegar námskeiðið var Flugið til Berlín var um 3  tímar og þar þurfti ég svo að drösla 19 kg handfarangrinum mínum niður stiga útúr vélinni og auðvitað varð ég lang síðust og krakkarnir stóðu fyrir neðan og hlógu af mér dröslandi þessu niður.   Þar tók svo við 8 tíma bið á flugvellinum og þessi flugvöllur var allsekki skemmtilegur og við héldum að við kæmumst í búðir og við stelpurnar rosa spenntar að komast í þýskt h&m en eina sem var þarna voru örfá sæti, ógeðslega skítug klósett (pjattrófu íslendingar) og sveittur hamborgarastaður , svo við fengum okkur sæti á miðju gólfi eins og margir aðrir og forum að spila Alias , svo fengum við okkur að borða a sveitta hamborgarastaðnum , eftir það forum við svo og æfðum skemmtiatriðið sem við þurftum svo aldrei að nota , en við vorum með krummi svaf í klettagjá raddað og rosa fínt ;). Svo liðu þessir 6 tímar þar til við gátum tjekkað okkur inn rosalega hægt og það voru frekar spúkí gaurar fyrir hliðiná okkur sem þóttust vera í hraðbankanum og eins og hann væri eiithvað bilaður , enn þeir stóðu þarna í svona klukkutíma ef ekki meira og voru alltaf að gjóa augunum í okkur. Svo eftir 4 tíma bið þá tjekkuðum við okkur inn , þá kom ágætis fríhöfn í ljós með nokkrum búðum og við skoðuðum eitthvað aðeins en vorum frekar þreytt og svöng svo við fengum okkur aftur að borða og þar á meðal ‘’ panini’’ sem er samloka  sem kemur við sögu hér á eftir.  Svo forum við í flugið til rome og það gekk allt bara vel. Hélt það myndi líða yfir mig úr hita þó að klukkan væri miðnætti Svo náðum við í töskurnar okkar og fórum svo út um hliðið og þar voru sjálfboðaliðar sem biðu eftir okkur. Þegar ég og Selma fórum útúr  flugvellinum því að við vörum síðastar ,þá var strax flautað á Selmu afþví hún er alveg ljóshærð! Vorum búin að standa úti í sirka 5 sekundur. Þaðan tókum við svo rútu á hótelið sem var um það bil klukkutíma í burtu og voru allir rosa þreyttir og dasaðir inní alveg loftlausri rútu. Svo fórum við á hótelið og þar voru aðrir 470 skiptinemar en allir farnir að sofa enda klukkan orðin half 2. Við drifum okkur svo á herbergin 3 saman og fórum strax að sofa eftir 20 tíma vöku og 2 tíma svefn nóttina áður. Hef sjaldan verið jafnt glöð að sjá rúm !! :)



Alias á flugvellinum

Loksins komin til Rome!


Laugardagurinn okkur íslendingunum var ekki sýnd nein miskun eftir 3 tíma svefn og þurftum að vakna klukkan 7 til að vera kominn í mat klukkan 8, við fórum þá og fengum okkur að borða og það sem var í boði var corn flakes, sætabrauð og brauð. Ég og Salka fengum okkur cornflakes með volgri(heitri) mjólk og svo fullt af ávöxtum, alltaf svo hollar. Ég , Salka, Selma , Hilmar og Daníel sátum á borði með Indverskum og Lithaenskum strak sem var með Hilmari I herbergi. Það var rosa skrítið að sjá hvernig indverski strákurinn var enn hann var alveg rosalega mikið inní sér og eiginlega eins og hann væri hræddur , svo fóru við stelpurnar á klósettið og þá ætlaði Hilmar að tala við hann enn þá var eins og hann hefði allur farið í flækju og inní sig , frekar spes. Svo var fundur í risastóru tjaldi þar sem allir skiptinemarnir voru. Okkur var skipt í hópa eftir svæðum og svo var fljótlega hádegismatur þar fengum við pasta og kjúkling..  Svo fór ég , Selma og Salka inná hótelherbergið mitt og mér var litið á paninið sem að Andrea skildi eftir rétt hjá svölunum og blasti ekki við mér þessi skemtilega sjón, Allt morandi í maurum og lína frá svölunum uppáborðið og inní pokan.. NAMM Svo voru aftur leikir og svo fórum við á fund í tjaldinu og þar var ræða og afþví v þetta varsíðasta kvöldið okkar í Rome saman píndum okkur að vaka aðeins lengur og fórum á kvöldvökuna eða það voru eitthverjir að spila á gítar þ.e.a.s skiptinemar. Svo fórum við nokkur inná hótelherbergi og töluðum saman og sofnuðum svo.

Ein á laugardagsmorgninum á hótelherberginu
Hluti af 470 skiptinemum í Ítalíu

Hriiiikalega gaman
Sunnudagur:
Sumir krakkar þurftu að fara frá hótelinu klukkan 6 en ég var heppin því ég þurfti ekki að fara fyrr en klukkan 1  Ég vaknaði samt klukkan 6 þegar stelpurnar voru að vakna.. Svo sofnaði ég aftur og ætlaði svo að vakna klukkan 7 til að fara í matinn en ég einfaldlega hef slökkt á símanum í svefni svo að ég vaknaði þegar klukkan var 10 við að Salka bankaði á hótelherbergishurðina hjá mér og vakti mig J Þá var ég búinn að missa af morgunmatnum en hann var klukkan 8. Ég stökk þá í snögga sturtu og gerði mig tilbúna til að fara uppá flugvöll að hitta fjölskylduna. Svo kvaddi ég Sölku því að hún fór í rútu rétt á undan mér .  Svo þeir sem fóru svona seint fengu mat klukkan 12 og hópurinn minn atti að vera tilbuinn til að fara í rútuna 12:30 svo að við þurfum að drífa okkur að borða pasta og kjúkling… í annað skiptið..  Ég og stelpa sem heitir Maria og er frá Indonesiu vorum saman og tælenski skiptineminn sem heitir Da og hún býr í næsta nágrenni við mig og er  fjölskyldan hennar vinafólk fjölskyldunnar minnar.  Svo fórum við með rútunni uppá flugvöllinn í rome og þar var sjálfboðaliði með okkur því þetta er risastór flugvöllur. Svo fórum við í flugvélina og þetta var hræðilegasta flugferð sem ég  hef á æfi minni upplifað en rosa stutt samt. Ég og stelpan frá Bosníu héldum að við myndum deyja í alvöru en við komumst líf af, svo vorum við þarna 12 skiptinemar að finna töskurnar okkar öll í eins skærgulum Intercultura bolum. Svo alltíeinu heyrum við köll og klöpp og öskur og þá kemur það úr útgangnum og þar sáum við 12 fjölskyldur bíða  eftir  og þar lr sjur og þt12 skiptinemar að finna töskurnar okkar öll a ftur að borða og þar l eftir okkur og þá varð stressið frekar mikið.  Við róuðum okkur aðeins niður áður en við fórum út og fórum svo fram. Þar sá ég stax KIKI og MARO !! Þau stóðu þarna brosandi með risastórann blómvönd fyrir mig , þetta var frekar vandræðalegt því ég sagði CHIAAAAO og kyssti þau á kinnina átti reyndar erfitt með að halda gleði tárunum inni og svo reyndu þau að tala við mig en þá kom Carla til min og hjálpaði mér , Carla er frænka mín og hún er einu ári eldri en ég og fór sem skiptinemi til Thailands og talar góða ensku. Svo kom trúnaðarmaðurinn minn , sem heitir Maria Paola, hún gaf mér poka með súkkulaði og bréfi í. Svo þegar við vorum búin að tala aðeins saman og tekið myndir þá var tekið afmér allar töskur og ég mátti allsekki halda á neinu , ekki einu sinni því sem mér var gefið þarna. Þau komu fram við mig eins og ég væri prinsessa! Svo fórum við í bílinn ég , mamma , pabbi, Carla og Emanuelle sem er hostbróðir Da hann er 2 árum eldri en ég.  Þau spurðu mig spurning sem Carla þýddi yfir á ensku fram og til baka , til dæmis uppáhalds mat ofl. Svo spurðu þau mig hvort ég væri of þreytt til að fara á pizzastað og ég sagði nei svo stoppuðum við í Dorgali sem er næsti bær við Cala Gonone , á kaffihúsi og ég fékk mér bara vatn. Svo fórum við heim og ég fór í sturtu og hún syndi mér þetta gullfallega hús sem við búum í , ég hef sér herbergi , sér bað og sér svalir á efri hæðinni. ( það er frekar skrítið að þau láta eins og ég eigi bara efrihæðina og spurja um leyfi eða afsaka sig ef þau þurfa fara upp og ég segi auðvitað alltaf á minni góðu ítölsku non problemo)Í húsinu eru 2 svalir 4 svefniherbergi 3 baðherbergi og 2 geymslur og risastór garður Svo löbbuðum við á pizzastaðinn sem er í næstu götu með Da og fjölskyldunni hennar  og Monica og maðurinn hennar komu með. Eftir þessa dýrindis pizzu fórum við heim og ég fór að sofaþví að ég var svo rosalega þreytt



Síðasta flugferðin , SARDEGNA

Cala gonone , bærinn sem ég bý í!!

Herbergið mitt!


Mánudagurinn: Ég vaknaði klukkan 7 til þess að fara með Mömmu og Cörlu í Nuoro því að ég þurfti að fara til löggunar útaf passporti ofl, svo fór Carla í skólann sinn til þess að taka eitthvað eitt próf ef ég skildi þetta rétt. Á löggustöðinni þa sat ég og mamma stóð , svo komu svona 10-15 alveg svartir menn inn og ég hélt á símanum mínum og vesekinu og öllu svo að ég var pínu hrædd og ég og mamma flýttum okkur svo út. haha :) Svo fór ég og Mamma á rölt um bæinn og hún sýndi mér alla helstu staðina í Nuoro en reyndar ekki skólann minn því að hann var frekar langt í burtu , Fórum svo í nokkrar búðir og svo fórum við og heimsóttum frænku mína sem er á svipuðum aldri og ég sem heitir Silvia. Við vorum svo komnar heim fyrir hádegi og þá fórum við og fengum okkur að borða , pasta og tómatsósu ,mozzarella, og tómatamauk og svínakjöt í hádegismat , þegar ég er búinn að borða hádegismat hér þá líður mér eins og það sé komið kvöld því við borðum svo mikið.(mamma þarft ekki að hafa áhyggjur af hungri) Anyways, þá fór ég og mamma að heimsækja Mariu sem er trúnaðarmaðurinn minn , hún vinnur í Gonone á hótelinu við ströndina! Svo fórum við mæðgur á ströndina Auðvitað tók ég sundfötin með mér í poka og bjóst við því að ég gæti skipt um föt þar en ég þurfti að fara til Monicu  að skipta. Ströndin var svo það besta og mömmu minni fannst frekar fyndið hvernig ég brást við þegar ég sá litla eðlu en mér brá fyrst og tók mynd og hún sagði mér að það væru svona eðlur í húsinu og inní herberginu mínu og hún spurði hvort eg væri hrædd og ég sagði auvðitað nei en er skíthrædd við þetta. Um kvöldið fór ég í göngutúr með Cörlu og hún sýndi mér allan bæinn og við hittum fullt af fólki sem eru skyld ''mér'' svo fengum við okkur gelato og hún sýndi mér strætoskilið sem ég fer í þegar ég tek bus í skólann. Við hittum svo vinkonu hennar og hún vill endilega kynnast mér svo að þær ætla taka mig á laugardaginn á stað sem er herna og við ætlum að borða saman pizzu og svo gista hjá Cörlu. Þegar við vorum búin að labba allan bæinn fór ég svo heim að borða og Monica og Giorgio komu og borðuðu með okkur og ég ætlaði að vera rosalega sniðug við mataborðið að segja við þau að þau væri brúðhjón   og við hann að hann væri brúðguminn og hana brúðurinn , ég náði því en svo þegar ég ætlaði að segja að hún væri brúður þá var greinilega vitlaust í orðabókinni minni því ég sagði þú ert trúður... GREAT enn þau hlógu bara að mér .. Var samt frekar vandræðalegt. Svo var Monica og Giorgio að reyna hjálpa mer að fá netið í tölvuna sem gekk ekki upp :( .  Svo kom Salvadore í heimsókn og hann á bát hérna og gróðurhús og hann bauð mér að koma með honum í bátsferð svo þegar þau voru farinn þá fór ég líka fljótlega að sofa

Útsýnið úr glugganum mínum!

Le beach
Gelato!!
Þriðjudagurinn: Ég vaknaði klukkan 7 til að taka strætó í Nuoro því að Carla ætlaði að sýna mér hvernig ég tek stræto í skólann og leiðina frá strætóskýlinu í skólann. Við fengum okkur morgunmat í Nuoro og það var macchiato og Crossant með súkkulaði. Svo þegar við vorum búin þar þá fórum við  að taka mynd fyrir árspassa í strætokortið og svo þurfti ég að taka ljósrit af vegabrefinu til að hafa í veskinu minu og svo fór ég með henni að kaupa skóladót eða penna og glósubækur , ég keypti líka bók um Sardiniu og svo sýndi hún mér staði í Nuoro Get ekki beint sagt að mér hlakki til að vakna klukkan 6 til að fara í rútu í 1 og hálfan klukkutíma í þessum hita !! En við vorum að ganga frá ýmsu í Nuoro. Svo fórum við og fengum okkur Panini sem var mjöööög gott , og ég var orðin roosa dösuð á því að sitja í hitanum og labba svo við satum í skugganum útá parki og borðuðum. Ég fékk mér ítalskt númer svo að ef þú villt fá það getur þú spurt mig ! :D Svo kíktum við í búðir og ég ætlaði að kaupa skartgripi fyrir brúðkaupi en ég mundi ekki litina á steinunum á kjólnum svo við drifum okkur að strætó stöðinni og tókum strætó heim. Þegar ég kom heim tók ég loksins til í herberginu því að ég hef ekki haft tíma til að taka uppúr töskunum vegna þess að það hefur verið full dagskrá fyrir mig alla dagana. Svo fórum við og heimsóttum systir mömmu sem heitir Paola sem á rosalega flott hótel hérna og risastórt hús , hún er arkitekt og hannaði hótelið. Svo fórum við að sjá Monicu máta brúðarkjólinn í Dorgali og kjóllin hennar er ekkert smá fallegur og ég er farin að hlakka til brúðkaupsins!  Við fórum svo í grænmetismarkað og keyptum ferskt grænmeti og í búð að kaupa í matinn. Þegar við vorum búnar að því þá fórum við og heimsóttum  systir Mario og hún á 3 stráka og eina stelpu , þau tala enga ensku en þau voru öll rosalega glöð að hitta mig og stelpan þeirra er kanski 10 ára og mamma sagði mér að þegar hún hafi sagt henni að hún væri að fá íslenska frænku þá var hún rosalega hissa.. Þegar við komum heim þá fórum við að borða og ég fór svo að sofa.


Miðvikudagur:
Ég vaknaði klukkan 8 og tók strandardótið mitt til og við borðuðum svo öll saman úti á stóru svölunum því það var rosa gott veður , svo þegar við vorum búin að borða þá fór ég niðrá bryggjuna og hitti þar Salvadore sem er bróðir pabba. Hann á semsagt bát hérna sem siglir með fólk á rosalega fallegar strendur sem engir vegir liggja til , og það er mjög erfitt að komast að labbandi , svo fólk fer þangað með bátum , Salvadore er rosalega fyndinn alveg eins og Mario/ pabbi. Hann er eins og frændi allra hérna , eins og í bíómyndunum , það vinna krakkar á bátnum hans og hann leyfði mér og öðrum krökkum að sitja fremst og uppá toppnum , svo leyfði hann mér að stýra , hann talar smá ensku afþví að hann er mikið með túristum en enskan er mjög takmörkuð , við fórum á  Cala luna sem er fræg stönd á Sardiniu. og á aðra s trönd þar sem við fórum af bátnum og vorum í 2 tíma í sólbaði og syntum smá. Já og Kiki þekkir stelpu sem fer með Salvadore í ferðirnar og hún er 25 ára og talar góða ensku fyrir ferðamennina á svo ég var mest með henni. Svo fórum við með ferðamennina á aðra strönd og við fórum inní skot þar sem var rosalega fallegt og við borðuðum hádegismat þar.  Svo kom ég að landi og fór heim og í sturtu og svo hjálpaði ég mömmu að elda og svo sagði hún me´r að vinkona sin væri að koma í heimsókn og hún á stelpu sem er 96 model og heitir Valeria. Svo kom Valeria og Anna Maria vinkona hennar og þær buðu mér pizzu og við fórum og borðuðum á ströndinni. Svo fór ég heim að sofa.
Bátnum hans Salvadore

Fimmtudagur: Ég vaknaði snemma til að fara með mömmu til Dorgali því að Monica og Mamma voru að fara í prufugreiðslu fyrir brúðkaupið , hér er allt á fullu við undirbúning , hef ekki stoppað síðan ég kom sem er gott því þá finn ég enga heimþrá. Á meðan þær fóru í prufugreiðslu þá fór ég til Valeriu í heimsókn og hún á 2 pínulitla ketti , systir hennar fann kassa úti með 5 kettlingum í fyrir mánuði síðan og þeir voru þá nýfæddir og annar þeirra er með stutt skott og engin veiðihár , hefur örugglega verið klippt af honum :(  . Svo fór ég með Valeriu og systrum hennar sem heita Roberta og Anna , í göngutúr um Dorgali. Svo kom mamma að sækja mig og við fórum heim og borðuðum og ég lagði mig , svo fórum við í heimsókn til Paolu sem er systir mömmu og hún á heima í þessu risastóra húsi með sundlaug og rosa flott svo fórum við aftur í Dorgali til að útrétta fyrir brúðkaupið og svo heim

Föstudagur: Ég fékk að sofa út í fyrsta skiptið hérna , það var auðvitað nýtt vel og ég svaf til rúmlega 11 fór svo í sturtu og síðan fór ég út í búð til að kaupa strætomiða og svo til Nuoro á ítölskunámskeið og var svo í Nuoro þar til um kvöldið og ég beið með Da sem er thailenski skiptineminn og henni var kalt í 2 peysum og ég stóð á bolnum..haha svo heim að sofa


Laugardagur:Ég fékk að sofa út aftur og við fórum svo og sóttum Mörtu í Olbia. Marta er systir mín sem býr í Milano og hún ætlar að vera hjá okkur yfir brúðkaupið og lengur. Svo fórum við og versluðum í Olbia sem er næst stærstaborgin á Sardiniu. Svo fórum við heim og ég fór með Cörlu út að borða og fjölskylduni hennar , fengum okkur pizzu og gelato , svo fór ég og gisti hjá Cörlu.

Sunnudagur: Ég vaknaði hjá Cörlu og við fórum uppá fjallið þar sem var rosa flott útsýni og sáum minningarmerki um holy maria. Svo fórum við á aquariu safnið hérna. Svo fékk ég að fara heim til hennar og tengjast netinu og borðaði hjá mömmu hennar sem er kokkur.
Aquariu

Staðreyndir:
Ég fékk hálfgert áfall þegar ég sá mömmu og pabba , þau eru alveg rosa lítil. Ég er svona hausinum stærri en hann og mamma nær mér að öxlum. En hér eru ALLIR litlir

Sardo er mállýska sem þau tala hérna og er ekki alveg eins og ítalska heldur nokkrar slettur eins og BO=ég veit ekki, Eija=já ofl.

Margt fólk hérna hefur bara vinnu yfir sumartímann eða þegar flestir túristar eru hérna . En þau græða svo mikið að það er nóg laun fyrir allt árið. Carla sagði mér að það sé ekki erfitt fyrir fjölskyldur að lifa á því. Í litla bænum mínum eru örugglega svona 10 hótel og FULLT af matsölustöðum.

(mamma) :Ég er búinn að búa um rúmið mitt síðan ég kom hingað!

Hef ekki séð eina feita manneskju síðan ég kom hingað!

Það reykja roooosalega margir hérna!



Fyrsti skóladagurinn er svo á morgun og ég blogga kanski aftur eftir nokkra daga , þangað til næst !! :D




Sunday, September 2, 2012

                                                                         Flugmiðarnir komnir í hús..6dagar