Ég heiti Karítas og er 17 ára gömul og er að fara þann 7.september sem skiptinemi til Ítalíu .
Ég fékk að vita það fyrir viku loksins að ég fékk fjölskyldu á þessum æðislega stað , Cala gonone sem er á Austur strönd Sardiniu og er 1200 manna sjávarþorp. Fjölskyldan samanstendur af Mömmu Kiki sem er fædd '62 og pabba Mario sem er fæddur '58 svo á ég tvær systur Mörtu og Monicu , þær eru báðar 27 ára og eru fæddar í Janúar og Desember sama árið! Pabbinn vinnur sem einkarafvirki og mamman vinnur á pósthúsinu. Ég hef talað aðeins við fjölskylduna . Marta býr í Milano og vinnur þar , hún er búin að bjóða mér að koma til sín í heimsókn og við getum skoðað saman Milano. Monica er að fara gifta sig 22 september svo ég fæ að upplifa Ítalskt brúðkaup! Monica býr í Cala gonone svo ég hitti hana örugglega mjög oft en Marta kemur samt oft heim. Svo er ég búin að kynnast frænku minni sem er einu ári eldri en ég og býr í þorpinu , og við förum saman í skólann en hún er samt í öðrum skóla , skólinn minn heitir Liceo scientifico enrico fermi og þetta er vísindaskóli en Carla frænka mín sagði að eg gæti samt valið sjálf fögin. Carla sagði mér að Kiki væri svo spennt að hitta mig og hún væri búinn að gera herbergið mitt alveg tilbúið og hún talaði varla um annað!
Kiki mamma senti mér bréf um daginn og mér lýst ekkert smá vel á þetta !
Ég ætla reyna vera dugleg að blogga þegar ég kem út.
Þangað til næst !
